Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland að hefjast
Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst að nýju mánudaginn 13. apríl með komu flugsveitar bandaríska flughersins. Alls munu um 200 liðsmenn taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center). Flugsveitin kemur til landsins með fjórar F-15 orrustuþotur og eina KC-135 eldsneytisbirgðaflugvél.
Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 15. - 17. apríl.
Verkefnið verður framkvæmt með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland. Ráðgert er að verkefninu ljúki um miðjan maí. Verkefnið er framkvæmt af starfsmönnum Landhelgisgæslu Íslands á Öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.