Lokun svæðis innan Reykjavíkurhafnar meðan flugeldasýning menningarnætur stendur yfir
Miðvikudagur 20. ágúst 2014
Meðan flugeldasýning menningarnætur stendur yfir, kl. 22:50 til 23:20 nk. laugardag, mun afmarkað svæði innan Reykjavíkurhafnar, umhverfis Faxagarð, verða lokað fyrir allri báta og skipaumferð.
Eftirlitsbátur frá Landhelgisgæslu Íslands verður á svæðinu með hlustvörslu á rás 16 og 12 ásamt bátum frá Landsbjörgu.
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar mun einnig senda út tilkynningu til sjófarenda með reglulegu millibili í gegnum VHF.
Lokaða svæðið er innan rauðu línunnar.
Smellið hér til að sjá stærra kort.