Bátur staðinn að meintum ólöglegum veiðum
Mánudagur 8. apríl 2013
Þyrla Landhelgisgæslunnar stöðvaði í dag bát að handfæraveiðum innan reglugerðarhólfs þar sem bannaðar eru veiðar vegna hrygningarstopps. Var báturinn færður til hafnar og tók lögregla á móti honum.
Landhelgisgæslan brýnir fyrir sjómönnum að fylgjast vel með lokunum sem eru í gangi hverju sinni.