Áhöfn Þórs við eftirlit á Reykjaneshrygg
Laugardagur 30. júní 2012
Varðskipið ÞÓR var nýverið við eftirlitsstörf á NEAFC svæðinu (North East Atlantic Fisheries Commission) á úthafskarfamiðunum á Reykjaneshrygg. Þegar komið var á svæðið voru þar tuttugu erlendir togarar, eitt erlent flutningaskip, eitt erlent olíuskip og tólf íslenskir togarar. Íslensku togaranir voru að veiðum fyrir innan fiskveiðimörkin en erlendu togaranir voru að veiðum í tveim hópum utar.
Aflinn á vinnslulínunni
Fóru varðskipsmenn til eftirlits um borð í ellefu togara frá Rússlandi, Spáni, Portúgal og Færeyjum en einnig voru á svæðinu togarar frá Litháen, Þýskalandi og Noregi. Að sögn skipverja höfðu aflabrögð togarana verið léleg að undanförnu. Úthafskarfaveiðar á Reykjaneshrygg hafa staðið yfir frá 10. maí og hafa eftirlitsskip frá Frakklandi og Spáni einnig sinnt eftirliti svæðinu.
Sjá reglugerð um veiðar úr úthafskarfastofnum 2012.
Rússneskur og færeyskur togari að veiðum
Þýskur togari
Varðskipsmenn á leið um borð í rússneskan togara
Franskt eftirlitsskip
Afurðir sem mjöl
Frosnar afurðir