Þyrlan skutlaði skólabörnum heim
Þyrlusveit LHG hafði í mörg horn að líta á flóðasvæðunum suðaustanlands
Þyrluáhafnir Landhelgisgæslunnar voru í eldlínunni í nýliðinni viku þegar mikil úrkoma og vatnavextir settu samfélagið úr skorðum suðaustanlands. TF-LIF fór austur á fimmtudaginn og daginn eftir kom TF-GNA einnig á vettvang.
Þyrlurnar á Hornafjarðarflugvelli
Verkefnin voru vægast sagt margvísleg. Þyrlurnar voru notaðar til að kanna ástand brúa og þjóðvega, sýna forsætisráðherra og föruneyti hans ástandið á flóðasvæðinu, flytja starfsfólk heilbrigðisstofnana á milli staða, koma lyfjum og vistum á bæi sem voru innlyksa og skutla skólabörnum heim. Þá var fjöldi fólks fluttur yfir Steinavötn en brúin yfir ána stórskemmdist í flóðunum.
Daníel Hjaltason flugvirki, Teitur Gunnarsson stýrimaður, Sigurður Ásgeirsson flugstjóri og Lárus Helgi Kristjánsson flugmaður ásamt Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra. Mynd: Svanhildur Hólm Valsdóttir
Báðar þyrlurnar voru á svæðinu lungann úr föstudeginum en um kvöldið fór TF-LIF aftur til Reykjavíkur. TF-GNA sinnti svo ýmsum verkefnum á laugardag en hélt svo heim á leið undir kvöld. Þeir Teitur Gunnarsson og Hreggviður Símonarson, stýrimenn á TF-LIF og TF-GNA, tóku fjölda mynda sem sýna glöggt hvernig ástandið var á svæðinu þegar flóðin stóðu sem hæst. Friðrik Jónas Friðriksson, í svæðisstjórn björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar, tók myndina skemmtilegu af unga manninum sem fékk far með þyrlunni úr skólanum en Svanhildur Hólm Valsdóttir tók myndirnar af áhöfn TF-LIF.