Georg Lárusson setti Skrúfudaginn

Fjölmetti sótti hinn árlega Skrúfudag Tækniskólans

  • DSCF9486

19.3.2024 Kl: 10:15

Georg Kr. Lárusson, sett hinn árlega Skrúfudag Tækniskólans sem haldinn var hátíðlegur um helgina.

Georg sagði stofnun Stýrimannaskólans árið 1891 vera eitt af stóru framfaraskrefum í sögu þjóðarinnar. Hann sagði sögu menntunar sjófarenda og sögu Landhelgisgæslunnar vera samofna.

,,Landhelgisgæslan var stofnuð 35 árum eftir að Stýrimannaskólinn var settur á laggirnar og naut góðs af því öfluga starfi sem þar var unnið. Án þeirrar þekkingar sem námið stuðlaði að hefðu stærstu fullveldissigrar þjóðarinnar í Þorskastríðunum tæplegast unnist.“ Sagði Georg sem bætti því við að Landhelgisgæslan hafi notið góðs af yfirburðaþekkingu og klókinda áhafna varðskipanna þegar fiskveiðilögsagan var færð í 200 sjómílur.

,,Fagmennska hefur ætíð einkennt skipstjórnar- og vélstjóranám á Íslandi. Þegar við hjá Landhelgisgæslunni tökum á móti okkar helstu samstarfsþjóðum um borð í varðskipum Gæslunnar, vilja þær læra af okkur og fá að vita hvernig íslenskir sjómenn starfa.

Við fáum spurningar um hvernig best skuli staðið að siglingum hér í Norður-Atlantshafi við þær krefjandi aðstæður sem hér ríkja og hvernig fara skuli að. Námið hér í skólanum leggur grunninn að svörunum við þeim spurningum sem við miðlum af stolti.“ Sagði Georg

Löng hefð er fyrir því að starfsmenn Landhelgisgæslunnar kynni starfsemi stofnunarinnar og var engin undantekning á því að þessu sinni.

Stýrimennirnir Anton Örn Rúnarsson og Elvar Már Sigurðsson stóðu vaktina að þessu sinni og kynntu Landhelgisgæsluna fyrir fjöldanum öllum af áhugasömu fólki sem leit við hjá þeim.

DSCF9496Georg Lárusson flutti upphafsávarp.

DSCF9756Frá Skrúfudeginum. 

Anton-OrnAnton Örn Rúnarsson stýrimaður með gestum.