Loftför

TF-SIF

TF-SIF, eftirlits- og björgunarflugvél Landhelgisgæslu Íslands er af gerðinni Dash 8 Q 300 og er flugvélin sérhönnuð til eftirlits-, leitar-, björgunar- og sjúkraflugs á Norður-Atlantshafi. Vélin er smíðuð af Bombardier en Field Aviation í Kanada annaðist hönnun og ísetningu tækjabúnaðar ásamt undirverktökum. Um eitt ár tók að útbúa vélina sérstaklega fyrir þau verkefni sem henni er ætlað að leysa af hendi. Við framleiðslu vélarinnar var áhersla lögð á draga úr hávaða og titringi jafnt innan sem utan flugvélarinnar. Vélar af tegundinni Dash 8 Q300 eru þekktar fyrir að geta athafnað sig á mjög stuttum flugbrautum, ennfremur þola þær talsverðan hliðarvind eða um 36 hnúta.

Flugdrægi vélarinnar er um 2100 sjómílur auk 45 mínútna varaeldsneytis. Með flugvélinni margfaldast eftirlitsgeta Landhelgisgæslu Íslands bæði með tilliti til mengunar, fiskveiða og hafíss. Möguleikar til leitar- og björgunar munu aukast gríðarlega, sérstaklega á hafi úti en einnig á landi.Um borð eru tvær vinnustöðvar sem útbúnar eru fullkomnu MMS (Mission Management System) sem m.a. aðstoðar við framkvæmd eftirlits, úrvinnslu og samhæfingar þeirra gagna sem safnað er, þ.e. í almennu fiskveiði-, ís- og mengunareftirliti. Um borð er hugbúnaður til að greina myndir og gagnagrunnur með skipum sem býður upp á þann möguleika að mæla lengdir skipa og flatarmál mengunar úr nokkurri fjarlægð. Hægt er að færa allar upplýsingar rafrænt á milli skjáa og vinnustöðva. Allar aðgerðir og upplýsingar úr eftirlitsbúnaði eru teknar upp og hægt er að framkvæma myndvinnslu samhliða upptöku.

Eftirlitsbúnaður Vinnustöðvar útbúnar MMS (Mission Management System) sem m.a. aðstoðar við framkvæmd eftirlits, úrvinnslu og samhæfingar þeirra gagna sem safnað er, þ.e. í almennu fiskveiði-, ís- og mengunareftirliti.
MX-15 Hita og day/light myndavél Til að framkvæma nánari skoðun og greiningu er vélin búin MX-15 myndavél sem gerir áhöfninni kleift að greina og taka upp athafnir jafnt að nóttu sem degi.