Leitar og björgunargeta á hafinu við Ísland byggir á þremur megin stoðum, þ.e. stjórnstöð LHG, loftförum (þyrlum og flugvél) og varðskipum, auk þess sem treyst er á hin almenna sjófarenda. Varðskip, flugvél og þyrlur eru órjúfanlegir hlekkir í þeirri keðju er mótar björgunargetu landhelgisgæslunnar.
Þyrlur Landhelgisgæslunnar geta sinnt leitar, björgunar og sjúkraflugi innan efnahagslögsögunnar. Þær eru sérstaklega útbúnar til björgunarstarfa og sinna jafnframt leit, björgunar og sjúkraflugi á landi. Eftirlits- og björgunarflugvélin er lykileining þegar kemur að leit að nauðstöddum, sérstaklega á ytri mörkum lögsögunnar og utan við lögsögunnar innan leitar og björgunarsvæðisins. Hún er búin fullkomnum ratsjám, hitamyndavél og er hægt að varpa björgunarbátum til nauðstaddra. Þetta er sérstaklega mikilvægt fyrir utan drægi þyrlanna þar sem aðeins er hægt að sinna leit og björgun með flugvélum og skipum. Varðskipin eru vel útbúin til björgunar og slökkvistarfa. Þá hafa þau mikla dráttargetu og eru lykileiningar þegar kemur að aðstoð og björgun stærri skipa við landið. Varðskipið Þór er sérstaklega útbúið til hreinsunar á olíumenguðum sjó og er eina skipið með slíkan búnað á svæðinu milli Noregs og Kanada.
Varðskipið getur virkað sem færanleg stjórnstöð í neyðaraðgerðum og tengt björgunarlið við samræmingarstöð í Skógarhlíð þó svo að allt venjulegt fjarskiptasamband liggi niðri t.d. vegna náttúruhamfara. Varðskipir býr einnig yfir öðrum mikilvægur eiginleikum:
Í mars 2021 tilkynnti Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, að ráðist yrði í kaup á varðskipi fyrir Landhelgisgæslu Íslands sem kæmi í stað varðskipsins Týs. Þá var jafnframt ákveðið að skipið myndi bera nafnið Freyja, en skip og loftför Landhelgisgæslunnar hafa í gegnum tíðina sótt nöfn sín í norræna goðafræði. Í apríl 2021 var efnt til útboðs og að því loknu var tilboði tekið í skip sem smíðað var í Suður-Kóreu árið 2010 og nýtt sem þjónustuskip fyrir olíuiðnaðinn. Kaupverðið nam rúmum 1,8 milljörðum króna.
TF-SIF er flugvél Landhelgisgæslunnar en hún er af tegundinni Dash 8 Q-300. Hámarks flugtími er tíu klukkustundir. Þar af er leitartími (OCE) í 710 sjómílna fjarlægð frá flugvelli tveir og hálfur tími.
Landhelgisgæslan hefur á að skipa þremur öflugum tveggja hreyfla þyrlum af gerðinni Airbus Helicopters Super Puma H225. Áhöfn: 2 flugmenn, 1 sigmaður, 1 spilmaður og 1 læknir, alls 5 Farþegar: Allt að 19 Hraði og drægi: Hámarkshraði: 175 sjóm/klst (324 km/klst) Hagkvæmur hraði: 142 sjóm/klst (263km/klst) Hámarks flugdrægi: 613 sjómílur (1135 km)
Flugþol: Hámarks flugþol í leit á hagkvæmasta hraða 5 klst, en annars tæpar 4 klukkustundir. Stærð: Mesta lengd á bol 16.79 metrar Mesta lengd á skrúfuferli 16,2 metrar Mesta breidd á bol 4 metrar Mesta hæð á bol 4,97 metrar Hámarks þyngd vélarinnar er um 11 tonn Sérútbúnaður: