Þór á leið með rafstöð til Siglufjarðar

11. desember, 2019

Óskað var eftir aðstoð varðskipsins í morgun.

11.12.2019 Kl: 12:42

Varðskipið Þór er nú statt norður af Straumnesi og er á leið til Siglufjarðar með rafstöð. Óskað var eftir aðstoð varðskipsins í morgun og hélt skipið til Ísafjarðar þar sem rafstöðin var sótt. Það ræðst af veðri hvenær skipið verður komið til Siglufjarðar en það gæti orðið seint í kvöld eða nótt. Áhöfn varðskipsins verður svo til taks við Norðurland ef á þarf að halda. Myndin af Þór er úr safni Landhelgisgæslunnar en hinar eru teknar í morgun.

RafstodRafstöðin er í þessari kerru um borð í varðskipinu.

Rafstod2