Flugdeild Landhelgisgæslunnar var kölluð út í 314 skipti
8.1.2024 Kl: 13:20
Flugdeild
Landhelgisgæslunnar annaðist metfjölda útkalla árið 2023. Alls var flugdeildin
kölluð 314 sinnum út í fyrra, bæði á þyrlum og flugvél sem er fimmtán útköllum
meira en árið 2022.
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út 303 sinnum og
áhöfnin á TF-SIF í 11 skipti. 115 útköll voru á fyrsta forgangi, 136 á öðrum
forgangi, 51 útkall var á þriðja og 12 á fjórða.
Rúmlega helmingur allra
útkalla flugdeildar Landhelgisgæslunnar í fyrra voru vegna sjúkraflutninga á
landi eða á sjó eða 161 útkall.
Fjöldi sjúklinga var samtals 183. Flest
útköllin voru á Suðurlandi en þónokkur fjöldi var einnig á Suðurnesjum vegna
jarðhræringa á Reykjanesi.