Fjöldi útkalla þyrlusveitar í sumar

27. ágúst, 2024

Fjögur útköll á undanförnum sólarhring.

27.8.2024 Kl: 13:53

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar hefur annast fjögur útköll undanfarinn sólarhring. Snemma í morgun var óskað eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna bráðra veikinda um borð í skemmtiferðaskipi sem var statt djúpt norður af Vestfjörðum og á meðan verið var að sinna því barst beiðni um útkall vegna veikinda í Grundarfirði. 

Tvær þyrlur voru því samtímis að annast útköll í morgun. Í gær annaðist þyrlusveitin einnig tvö útköll, vegna bráðra veikinda á Hvammstanga og á Hornbjargi. Sveitin sinnti því fjórum útköllum á einum sólarhring.Alls hefur þyrlusveit Landhelgisgæslunnar annast 160 útköll frá 1. maí til dagsins í dag sem nokkur aukning miðað við sama tímabili í fyrra en þá var sett met í fjölda útkalla þyrlusveitarinnar.Mynd: Lloyd Horgan