Farþegabátur fór ítrekað út fyrir leyfilegt farsvið

7. febrúar, 2019

Var einnig með of marga um borð

7.2.2019 Kl: 16:22

Borið hefur á því að skipstjórar farþegaskipa hafi ekki virt
leyfilegt farsvið sitt og hefur Landhelgisgæslan þurft að áminna og kæra skipstjóra.

Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar höfði um
helgina afskipti af farþegabáti sem hafði farið út fyrir leyfilegt farsvið
sitt. Skipstjórinn var áminntur og beðinn um að halda sig innan þeirra marka
sem tilgreind eru reglugerð um öryggi farþegaskipa í innanlandssiglingum. Degi
síðar var sami bátur aftur kominn út fyrir farsviðið.

Á mánudag endurtók skipstjóri þessa sama báts leikinn í
þriðja sinn og fór út fyrir leyfilegt farsvið. Landhelgisgæslan kallaði út
séraðgerðasveit sem tók á móti bátnum þegar hann kom til hafnar í Reykjavík og
taldi farþega um borð. Skipstjórinn hafði tjáð Landhelgisgæslunni að 12
farþegar væru í bátnum en við talningu kom í ljós að þeir voru tæplega tvöfalt
fleiri, eða 27 talsins, en máttu aðeins vera með 12. Skipstjórinn á yfir höfði sér kæru fyrir
athæfið.

Í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar leggja menn metnað sinn í
að vakta umferð báta og skipa í öryggisskyni. Því er afar mikilvægt að
skipstjórnarmenn virði leyfilegt farsvið og standi rétt að skráningu farþega.
Það skiptir viðbragðsaðila miklu máli að vita fjölda farþega um borð ef
neyðarástand skapast.

Í kjölfar atvikanna ákvað Landhelgisgæslan að senda
eftirlitsmenn frá varðskipinu Þór til sérstaks eftirlits með farþegabátum í
grennd við Reykjavík í dag. Við þá athugun kom í ljós að einn farþegabátur
hafði farið lítillega út fyrir leyfilegt farsvið og var skipstjórinn áminntur í
kjölfarið. Landhelgisgæslan vill brýna fyrir skipstjórnarmönnum að virða lög og
reglur sem gilda um fjölda farþega og leyfilegt farsvið.