-Viðbrögð við hryðjuverkaárásum æfð
10.9.2019 Kl: 15:22
Northern Challenge,
árleg æfing sprengjusérfræðinga, hófst á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli á
sunnudag og stendur fram í næstu viku. Um er að ræða alþjóðlega æfingu
Atlantshafsbandalagsins sem Landhelgisgæslan hefur veg og vanda af. Hún fer að
stærstum hluta fram á starfssvæði Landhelgisgæslunnar á Keflavíkurflugvelli en
jafnframt á hafnarsvæðum víðs vegar á Suðurnesjum. Þetta er í átjánda sinn sem
æfingin er haldin.
Markmið æfingarinnar er að æfa viðbrögð við hryðjuverkum þar
sem heimatilbúnum sprengjum hefur verið komið fyrir. Verkefni
sprengjusérfræðinganna er að leysa slíkan vanda. Samskonar búnaður og fundist
hefur víðs vegar um heim er útbúinn og aðstæður hafðar eins raunverulegar og
kostur er. Æfingin fer fram við fjölbreyttar aðstæður, t.d. á flugvelli, í
höfnum, í skipi og við bryggju. Sérhæfð stjórnstöð er jafnframt virkjuð þar sem
öll uppsetning og vinnubrögð eru samkvæmt alþjóðlegum ferlum
Atlantshafsbandalagsins.
Æfingin veitir sprengjusérfræðingum, sem koma hvaðanæva að
úr heiminum, einstakt tækifæri til að samhæfa aðgerðir auk þess að miðla
reynslu og þekkingu sinni til annarra liða. Northern Challenge hefur notið
mikilla vinsælda á undanförnum árum og hefur skipað sér sess sem ein
mikilvægasta æfing sprengjusérfræðinga í Evrópu.
Að þessu sinni eru þátttakendurnir frá 17 þjóðum og alls eru
27 lið skráð til leiks. Þeir sem koma lengst að eru frá Nýja-Sjálandi en að
æfingunni koma hátt í 300 manns.
Sérhæfð stjórnstöð er jafnframt virkjuð þar sem öll uppsetning og vinnubrögð eru samkvæmt alþjóðlegum ferlum Atlantshafsbandalagsins.
Samskonar búnaður og fundist hefur víðs vegar um heim er útbúinn og aðstæður hafðar eins raunverulegar og kostur er.