Áhöfnin á TF-SIF kölluð út vegna neyðarsendis

30. desember, 2023

Reyndist vera af flutningaskipi sem var á siglingu í nágrenninu

30.12.2023 Kl: 11:53

Áhöfnin á TF-SIF, eftirlitsflugvél
Landhelgisgæslunnar, var kölluð út í gærkvöldi eftir að stjórnstöð
Landhelgisgæslunnar barst tilkynning í gegnum gervitungl um að neyðarsendir
væri virkur djúpt suður af Reykjanesi. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var
sömuleiðis höfð í viðbragðsstöðu á Reykjavíkurflugvelli.

Við athugun varðstjóra í stjórnstöð
Landhelgisgæslunnar kom í ljós að staðsetning neyðarsendisins væri í nágrenni
við maltneska flutningaskipið Ludogerets sem var á siglingu um 114 sjómílum
suðvestur af Reykjanesi. Um borð í Ludogerets sagðist áhöfnin ekki sakna neins
búnaðar eða mannskaps og allt væri í himnalagi um borð.

Þegar flugvél Landhelgisgæslunnar kom á svæðið
heyrðist greinilega í sendinum, baujan sem sendi neyðarmerkið í gegnum
gervitunglið sást greinilega og stuttu seinna sást ljósmerki frá
neyðarsendinum. Ekkert annað sást á floti í nágrenninu.

Eftir samskipti stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar og
samhæfingarstöðvarinnar í Portúgal kom í ljós að umræddur neyðarsendir var
skráður á flutningaskip sem áður hét Macaran en bæri nú nafnið Ludogerets. Í
ljósi þessara upplýsinga var talið óhætt að kalla TF-SIF aftur til Reykjavíkur.
Búnaður og þjálfun áhafnar hennar reyndist sérlega vel í útkallinu og sem betur
fer reyndist enginn vera í hættu.

Flugferill-TF-SIFJARFlugferill TF-SIFJAR.