Stýrimenn Landhelgisgæslunnar fylgdi skipi til hafnar.
Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar urðu þess áskynja við hefðbundna vöktun í gærmorgun að íslenskt skip væri á siglingu norðan við landið án þess að vera með gilt haffærnisskírteini auk þess sem grunur léki á að lögskráning skipstjórans um borð væri ekki fullnægjandi. Landhelgisgæslan óskaði því eftir því að skipið sneri aftur til upphaflegrar hafnar. Þeir sem voru um borð höfnuðu því og vildu ekki fylgja fyrirmælum Landhelgisgæslunnar.
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var því kölluð út til að flytja tvo stýrimenn um borð í skipið. Þegar komið var að skipinu sigu stýrimennirnir tveir um borð og tilkynntu áhöfninni að þeir væru þangað komnir til að fylgja skipinu til hafnar. Þegar í land var komið tók lögregla á móti áhöfninni og tók af henni skýrslu en rannsókn málsins er í höndum lögreglunnar á Norðurlandi-Eystra.