Framkvæmdir við flugskýli Landhelgisgæslunnar

12. nóvember, 2024

Snjóbræðsla sett við flugskýlin.

12.11.2024 Kl: 12:24

Þau sem hafa ekið framhjá flugskýli Landhelgisgæslunnar í
vikunni hafa eflaust tekið eftir fjölmörgum vinnuvélum og starfsfólki sem
vinnur nú í kappi við tímann að koma nýrri snjóbræðslu fyrir á flughlaðinu. 

Um
mikið öryggisatriði er að ræða, sérstaklega ef ræsa þarf þyrlur
Landhelgisgæslunnar við flugskýlin í frosti og hálku. Snjóbræðslan sem fyrir
var á planinu hefur að undanförnu verið óvirk og því þurfti að koma nýrri snjóbræðslu
fyrir. 

Allt kapp er lagt á að klára verkið fyrir vikulok og þeir sem að verkinu
standa vinna baki brotnu fram á kvöld til að aðstaða þyrlusveitarinnar verði
komin í samt horf sem fyrst.

Á meðan framkvæmdunum stendur er eldra flugskýli
Landhelgisgæslunnar, sem alla jafna er notað fyrir viðhald, nýtt fyrir þær
þyrlur sem eru tilbúnar í útkall og þyrlunum ýtt út vestan megin við skýlið.

Snjobraedsla-flughladFramkvæmdir ganga vel.