USS Indiana kom í stutta þjónustuheimsókn

11. október, 2024

Landhelgisgæslan leiddi framkvæmd heimsóknarinnar.

11.10.2024 Kl: 10:13

Áhöfnin á varðskipinu Freyju fylgdi bandaríska kafbátnum,
USS Indiana, um landhelgina í vikunni. Kafbáturinn var hingað kominn í stutta
þjónustuheimsókn og áhafnarskipti. Áhafnarskiptin fóru fram í Stakksfirði.

Þetta er í fimmta sinn sem kjarnorkuknúinn kafbátur
bandaríska sjóhersins kemur í þjónustuheimsókn í íslenska landhelgi eða frá því
að utanríkisráðherra tilkynnti í apríl 2023 að slíkum kafbátum yrði heimilað
að hafa stutta viðkomu úti fyrir ströndum Íslands til að taka kost og skipta út
hluta áhafnar. USS Indiana er orrustukafbátur af Virginia-gerð og slíkir
kafbátar bera ekki kjarnavopn.

Landhelgisgæsla Íslands leiðir framkvæmd heimsóknarinnar í
nánu samstarfi við embætti ríkislögreglustjóra, Geislavarnir ríkisins og
utanríkisráðuneytið í samræmi við settar verklagsreglur.

IMG_5819Liðsmaður séraðgerðasveitar.