Northern Challenge hafin

26. september, 2024

Fjölþjóðleg æfing sprengjusérfræðinga sem Landhelgisgæslan annast og skipuleggur er hafin.

26.9.2024 Kl: 7:05

Sprengjusérfræðingar
frá 17 löndum munu á næstu tveimur vikum æfa viðbrögð við ýmsum ógnum á hinni
árlegu Northern Challenge. Um er að ræða alþjóðlega æfingu
Atlantshafsbandalagsins sem séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar annast og
skipuleggur. Alls 320 þátttakendur frá Íslandi, Belgíu, Kanada, Tékklandi,
Danmörku, Frakklandi, Þýskalandi, Írlandi, Litáen, Nýja Sjálandi, Svíþjóð,
Noregi, Austurríki, Póllandi, Hollandi og Bretlandi taka þátt að þessu sinni.

Á
æfingunni gefst sprengjusérfræðingunum kostur á að æfa og samhæfa viðbrögð við
atvikum sem kunna að koma upp, eins og t.d hryðjuverkum. Á æfingunni er líkt
eftir sprengjum sem fundist hafa víða um heim og þurfa þátttakendur að
meðhöndla þær og aftengja. Þetta er í tuttugasta og þriðja sinn sem Northern
Challenge er haldin hér á landi. Sem fyrr fer æfingin að stærstum hluta fram
innan öryggissvæðisins á Keflavíkurflugvelli en einnig í Helguvík og í
Hvalfirði.

Æfingin
veitir sprengjusérfræðingum, sem koma hvaðanæva að úr heiminum, einstakt
tækifæri til að samhæfa aðgerðir auk þess að miðla reynslu og þekkingu sinni
til annarra liða. Northern Challenge hefur notið mikillar virðingar á meðal
þjóða NATO og hefur skipað sér sess sem ein mikilvægasta æfing
sprengjusérfræðinga innan Atlantshafsbandalagsins. Æfingin hefst í dag og
stendur til 9. október.

Stjornstod-a-oryggissvaedinuStjórnstöð á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.