Leitað á Vogaheiði í síðasta mánuði

11. september, 2024

Myndir frá leitinni.

11.9.2024 Kl: 15:01

Eitt af verkefnum séraðgerðasveitar Landhelgisgæslunnar er
að eyða sprengjum sem finnast á landi og á hafinu umhverfis landið.

Vegna hernaðarstarfsemi hér á landi á árum áður finnast djúpsprengjur
og fallbyssukúlur enn í sjó og á landi, en fjöldi slíkra hluta sem komið hafa
til kasta séraðgerðasveitarinnar í gegnum tíðina skiptir þúsundum. Það er
útbreiddur misskilningur að þessir hlutir verði hættulausir með tímanum. Þvert
á móti verða þeir yfirleitt mun hættulegri. Sprengiefnið verður viðkvæmara og
oft er öryggisbúnaður ónýtur, þannig að sprengjan getur sprungið fyrir annan og
minni tilverknað heldur en upphaflega var gert ráð fyrir.

Í lok síðasta mánaðar fannst virk sprengja á Vogaheiði en
svæðið var þekkt skotæfingasvæði bandaríska hersins á sjötta og sjöunda áratug
síðustu aldar. Svæðið hefur nokkrum sinnum verið leitað og hreinsað í gegnum
tíðina en það er sérlega torfært og erfitt viðureignar.

 Séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar
fór ásamt bandarískum hermönnum sem dvöldu hér á landi vegna varnaræfingarinnar
Norður Víkingur og leituðu svæðið í kjölfarið en einungis ein óvirk sprengja
fannst.

Séraðgerðasveitin fær því á hverju ári fjölda verkefna vegna
hluta frá stríðsárunum en einnig vegna annarra og nýrri hluta.

Nordur-Vikingur12721Leitað í úfnu hrauni.

Nordur-Vikingur12764Leitað á Vogaheiði.

Nordur-Vikingur12784Liðsmenn bandaríska hersins og séraðgerðasveitar Landhelgisgæslunnar við leit. 

Nordur-Vikingur12715Svæðið var æfingasvæði hersins á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar.