Manninum tókst að komast í björgunargalla og var bjargað um borð í strandveiðibát sem var í grenndinni.
16.5.2024 kl: 04:13
Mannbjörg
varð þegar strandveiðibátur sökk norðvestur af Garðskaga á þriðja tímanum í
nótt. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst neyðarkall frá skipstjóra annars
strandveiðibáts klukkan 02:42 þess efnis að bátur í grenndinni væri að sökkva
um 6 sjómílur norðvestur af Garðskagavita. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var
þegar í stað kölluð út á hæsta forgangi ásamt sjóbjörgunarsveitum
Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Suðurnesjum. Þá voru nálæg fiskiskip og
bátar beðin um að halda á staðinn.
Skömmu
eftir að neyðarkallið barst Landhelgisgæslunni hafði tilkynnandi aftur samband
og tjáði varðstjórum í stjórnstöð að hann væri búinn að bjarga manninum úr
sjónum en bátsverjanum tókst að komast í björgunargalla áður en bátur hans
sökk. Maðurinn var kaldur eftir veruna í sjónum og var ákveðið að sjúkrabíll
biði hans á bryggjunni á Sandgerði. Sá sem bjargaði manninum sigldi með hann
þangað. Báturinn marar í hálfu kafi og munu sjóbjörgunarsveitir Landsbjargar
freista þess að draga hann til hafnar.
Landhelgisgæslan
vill koma á framfæri sérstökum þökkum til skipstjóra strandveiðibátsins sem
sýndi mikið snarræði við björgun mannsins og einnig til annarra viðbragðaðila
sem brugðust við með skjótum og fumlausum hætti.