Borgarísjakinn var talinn vera um 130×100 metrar.
1.8.2023 Kl: 11:28
Í eftirlitsflugi áhafnarinnar á TF-GNA á dögunum varð þyrlusveitin
vör við radarsvar í ratsjá þyrlunnar þegar flogið var utan við Smiðjuvík á
Vestfjörðum. Haldið var að merkinu sem var í 12 sjómílna fjarlægð og reyndist
það vera ísjaki. Á leið að jakanum sást íshröngl á stærð við fólksbíl vestan
við hann. Jakinn var hæðarmældur og lengd hans stikuð út en hún er talin hafa
verið 130×100 metrar. Hæðin var frá átta metrum upp í fimmtán metra.
Jakinn var á stað 66°22,7‘N 021°41‘V og virtist vera
strandaður. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar var upplýst sem kallaði í kjölfarið út
siglingaviðvörun.
Áhöfnin tók eina hífingu á jakanum, án þess þó að
sigmaðurinn losaði sig úr vírnum, og hélt eftirlitsferð sinni áfram í kjölfarið.
Þórarinn Ingi Ingason, flugstjóri, og borgarísjakinn í bakgrunni.
Kolbeinn Guðmundsson, sigmaður, sígur niður á borgarísjakann.
Tekin var ein hífing.