Varðskipið Þór dró togskip til Reykjavíkur

27. nóvember, 2022

Áhöfnin á Þór var snögg á staðinn

27.11.2022 Kl:14:52

Skipstjóri íslensks togskips hafði samband við
stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í gærmorgun og óskaði eftir aðstoð varðskips
vegna vélarbilunar. Skipið var þá statt um 16 sjómílur vestur af Látrabjargi. 

Nokkru síðar hafði skipstjórinn aftur samband við Landhelgisgæsluna en þá var
lítils háttar leki kominn að skipinu sem dælur um borð réðu við. Varðskipið Þór
var við Bíldudal og var þegar í stað kallað út. 

Áhöfnin á Þór var snögg á
staðinn og var komin að togskipinu á ellefta tímanum í gærmorgun. 

Varðskipsmenn
skutu línu á milli skipanna og að því búnu var haldið áleiðis með togskipið til
Reykjavíkur þangað sem skipin komu um hádegisbil í dag.

Myndir: Sævar Már Magnússon

Linu-skotid-yfirLínu skotið á milli skipanna. 

Áhöfnin á Þór dregur togskip til Reykjavíkur í nóvember 2022 Myndband af aðgerðinni.