Carrin F. Patman, nýr sendiherra bandaríkjanna á Íslandi, heimsótti Landhelgisgæsluna.
2.11.2022 Kl: 15:41
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, tók á
móti Carrin F. Patman, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi í höfuðstöðvum
Landhelgisgæslunnar í Skógarhlíð í gær. Patman kynnti sér starfsemi stjórnstöðvar
Landhelgisgæslunnar, sjómælinga, séraðgerðasveitar og flugdeildar.
Með Patman í
för var einnig Jason A. Neal, hermálafulltrúi bandaríska sendiráðsins. Heimsóknin
endaði um borð í varðskipinu Þór þar sem Páll Geirdal, skipherra, sýndi
sendiherranum skipið og búnað þess.
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands tekur á móti Patman í Skógarhlíð.
Sendiherrann ræðir við Sigurð Wiium, yfirflugstjóra Landhelgisgæslunnar.
Í flugskýli Landhelgisgæslunnar í Skógarhlíð.
Páll Geirdal skipherra sýnir Patman varðskipið Þór.
Patman kynnir sér sjómælingar.