Áhöfnin á varðskipinu Þór flutti grjót í Grímsey í morgun.
6.9.2022 Kl: 11:27
Áhöfnin á varðskipinu Þór flutti í morgun 16 bretti af grjótskífum í landi á Grímsey. Alls er um 11 tonn af grjóti að ræða sem notað verður vegna byggingar á nýrri kirkju í eynni. Þegar varðskipið var við eyjuna í morgun var svarta þoka og lítið skyggni en þrátt fyrir það gekk vel að ferja brettin í land. Þau voru hífð um borð í léttbát Þórs og siglt með þau í Grímseyjarhöfn þar sem byggingaraðilar tóku við þeim. Fyrr í sumar flutti áhöfn Þórs byggingarefni í eyjuna en þá flutti skipið sex tonn af timbri og grjót í Grímsey.Okkur þykir ánægjulegt að geta aðstoðað við framkvæmdir á nyrsta kirkjubóli landsins þegar varðskipin eru við eftirlit á svæðinu.Grjótið um borð í varðskipinu Þór.
Grjótið flutt úr varðskipinu yfir í léttbátinn.
Léttbátur varðskipsins Þór flytur grjótið í Grímsey.
Grjótinu komið í land.
Varðskipið Þór.