Fyrsta verkefni Freyju

26. nóvember, 2021

Freyja er með flutningaskipið Francisca í togi áleiðis til Akureyrar.

26.11.2021 Kl: 20:41

Varðskipið Freyja er nú með flutningaskipið
Francisca í togi áleiðis til Akureyrar. Þetta er fyrsta verkefni varðskipsins
Freyju sem hélt í sína fyrstu eftirlitsferð fyrr í vikunni en skipið kom til
landsins þann 6. nóvember. Bilun kom upp í flutningaskipinu og var leitað til
Landhelgisgæslunnar vegna mikillar dráttargetu Freyju sem mun draga skipið til
Akureyrar. Skipin lögðu af stað frá Straumsvík um klukkan sjö í kvöld og er
áætlað að þau verði komin til Akureyrar á aðfaranótt mánudags.

Freyja er mjög vel búin dráttarspilum svo taka
má stór og öflug skip í tog en dráttargeta skipsins er til að mynda um tvöfalt
meiri en dráttargeta varðskipsins Þórs. Meðfylgjandi er myndband sem sýnir
undirbúning verkefnisins fyrr í dag og þegar skipin sigldu af stað um
kvöldmatarleytið.

Myndir: Guðmundur St. Valdimarsson.

Fyrsta verkefni Freyju

Undirbuningur-verkefnisUndirbúningur verkefnisins hófst fyrr í dag.Image00034Einar Valsson, skipherra, einbeittur.UndirbuningurMörg handtök.Image00038Friðrik Höskuldsson, yfirstýrimaður.Skipin-logd-af-stadFrancisca í togi.Image00010_1637959345538Áhöfn Freyju.