Nokkrir starfsmenn Landhelgisgæslunnar héldu til Hollands á dögunum og fengu kennslu á varðskipið Freyju sem afhent verður Landhelgisgæslunni í október.
23.9.2021 Kl: 15:43
Nokkrir
starfsmenn Landhelgisgæslunnar héldu til Hollands á dögunum og fengu kennslu á
varðskipið Freyju sem afhent verður Landhelgisgæslunni í október. Óhætt er að
segja að með tilkomu Freyju verði mikil framþróun í björgunargetu
Landhelgisgæslunnar og aðbúnaði starfsfólks. Þegar Freyja kemur til landsins
mun Landhelgisgæslan hafa á að skipa tveimur afar öflugum varðskipum,
sérútbúnum til að sinna löggæslu, leit og björgun á krefjandi hafsvæðum
umhverfis Ísland.
Hálft ár
er liðið frá því að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, tilkynnti
að öflugt varðskip yrði keypt fyrir Landhelgisgæsluna. Georg Lárusson,
forstjóri Landhelgisgæslu Íslands segir kaupferlið hafa gengið hratt og
örugglega fyrir sig og niðurstaðan sé gleðileg.
,,Við erum
ákaflega ánægð með niðurstöðu útboðsins og þjóðin kemur til með að fá afar
vandað og vel búið varðskip. Dráttargeta Freyju er til að mynda tæplega tvöfalt
meiri en dráttargeta varðskipsins Þórs eða rúm 200 tonn. Einnig eru færanlegir
kranar á afturþilfari skipsins sem gera björgunarstörf og aðra vinnu
áhafnarinnar auðveldari. Þá er einn öflugur stór krani fremst á afturþilfari.
Skipið er mjög vel búið dráttarspilum svo taka má stór og öflug skip í tog.
Freyja hefur jafnframt svokallað DP2 stjórnkerfi sem er heldur fullkomnara en
kerfi Þórs auk þess sem skipið er búið svokölluðu FIFI-2 slökkvikerfi. Við hjá
Landhelgisgæslunni erum ákaflega spennt að fá þetta stórgóða skip í flotann.
Með tilkomu Freyju er stórt framfaraskref stigið í björgunarmálum þjóðarinnar.
“ Segir Georg.
Um borð í
varðskipinu Freyju eru vistarverur fyrir þrjátíu og fimm manns og gott
þilfarspláss sem gerir skipið einstaklega vel búið til að flytja björgunarbúnað
þegar samgöngur á landi bregðast. Þá er Freyja útbúin sambærilegum ísklassa og
varðskipið Þór.
Einar H.
Valsson, skipherra, sigldi með Freyju á dögunum þar sem skipið var í verkefni á
vegum seljenda. ,,Freyja er mjög öflugt varðskip og afar vel búið til að takast
á við þau verkefni sem Landhelgisgæslunni eru falin. Í ferðinni á dögunum var
gaman að sjá þá fjölmörgu möguleika sem skipið býr yfir.“ Segir Einar.
Garðar Nellett, háseti, og Einar H. Valsson, skipherra.
Gísli Páll, yfirvélstjóri lærir á vélbúnað skipsins.
Setustofa skipsins.
Aftari hluti brúar.
Öflugir kranar eru um borð í skipinu.