Halldór Nellett lýkur glæsilegum hálfar aldar ferli hjá Landhelgisgæslunni

9. desember, 2020

Halldór var heiðraður af samstarfsfélögum við komuna til Reykjavíkur

9.12.2020 Kl: 15:04

Halldór Nellett, skipherra á varðskipinu Þór, lauk tæplega
hálfrar aldar ferli hjá Landhelgisgæslunni þegar varðskipið kom til hafnar í
Reykjavík í morgun.

Halldór var heiðraður af samstarfsfélögum við komuna til
Reykjavíkur en áhafnir beggja varðskipa, Þórs og Týs, stóðu heiðursvörð þegar
skipið sigldi til hafnar. Að auki fylgdi TF-GRO, þyrla Landhelgisgæslunnar,
Halldóri síðasta spölinn til Reykjavíkur sem og hafnsögubátur Faxaflóahafna. Þá
stóðu nokkrir starfsmenn Landhelgisgæslunnar einnig heiðursvörð á bryggjunni
þegar Halldór steig frá borði og þremur púðurskotum var skotið úr fallbyssu
honum til heiðurs.

 Georg Kr. Lárusson tók á móti honum við komuna og þakkaði
honum fyrir óeigingjarn starf í þágu lands og þjóðar.

Ferill Halldórs hjá Landhelgisgæslu Íslands er bæði farsæll
og viðburðaríkur. Hann einkennist af fórnfýsi, útsjónarsemi og ástríðu fyrir
björgunarstörfum. Halldór var einungis 16 ára þegar hann var ráðinn messagutti
um borð í varðskipinu Ægi árið 1972. Sex árum síðar útskrifaðist hann úr
farmannadeild Stýrimannaskólans í Reykjavík og lauk varðskipadeild sama skóla í
kjölfarið. Halldór hefur gegn störfum sem skipstjórnarmaður á varðskipum og
loftförum Landhelgisgæslu Íslands í fjölda ára. Hann hefur siglt sem skipherra
frá árinu 1992 og hefur verið fastráðinn sem slíkur frá árinu 1996. Hann tók
þátt í tveimur þorskastríðum og var jafnframt í áhöfn varðskipsins Ægis sem
kallað var út þegar gos hófst á Heimaey 23. janúar 1973. Hann hefur gegnt
fjölda starfa innan Landhelgisgæslunnar, meðal annars sem yfirmaður aðgerða og
var staðgengill forstjóra í kringum aldamótin. Þá tók hann virkan þátt í
uppbyggingu þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar á níunda áratug síðustu aldar og
starfaði bæði sem spilmaður og sigmaður um borð í björgunarþyrlunni TF-SIF. 

Halldór reyndi jafnframt fyrir sér í millilandasiglingum en kom fljótt aftur
til Landhelgisgæslunnar þar sem hann hefur lagt lóð sitt á vogarskálarnar í
leitar- og björgunarmálum í þágu íslensku þjóðarinnar. 

Þá var Jón Páll Ásgeirsson, stýrimaður, einnig heiðraður við sama tilefni en hann lauk störfum hjá Landhelgisgæslunni fyrr á árinu.

Þór siglir til Reykjavíkur

_S4I0772Halldór kemur í land._S4I0917Ferill Halldórs hjá Landhelgisgæslunni er glæsilegur.Jon-Pall-Asgeirsson-Hafdis-Hronn-Gardarsdottir-Halldor-Benony-Nellett-Georg-Kr.-Larusson-Asgrimur-L.-Asgrimsson-Audunn-F.-Kristinsson-Svanhildur-SverrisdotÞá var Jón Páll Ásgeirsson, stýrimaður, einnig heiðraður við sama tilefni en hann lauk störfum hjá Landhelgisgæslunni fyrr á árinu._S4I0857Georg Kr. Lárusson tók á móti Halldóri við komuna til Reykjavíkur._O0A9665Halldór kemur til hafnar á Þór í síðasta sinn.