Áður en þyrlan og björgunarsveitir komu á staðinn tókst að koma bátinum í tog sem var dreginn til hafnar á Dalvík.
1.7.2020 Kl: 13:01
Þyrla Landhelgisgæslunnar og sjóbjörgunarsveitir á vegum
Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Eyjafirði voru kallaðar út á tólfta tímanum
í dag vegna fimm tonna fiskibáts sem varð vélarvana vestur af Hrólfsskeri og
rak hratt að bjargi.
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar óskaði sömuleiðis eftir
aðstoð báta í grenndinni sem brugðust hratt við. Þyrla Landhelgisgæslunnar var á
flugi þegar útkallið barst og var í 20 mínútna fjarlægð. Áður en þyrlan og
björgunarsveitir komu á staðinn tókst að koma bátinum í tog sem var dreginn til
hafnar á Dalvík. Einn var um borð í bátnum og sakaði hann ekki.