Kanadíski flugherinn með færanlegan ratsjárbúnað á Miðnesheiði

18. febrúar, 2020

– Kanadíski flugherinn flutti færanlegan ratsjárbúnað hingað til lands til að trygga órofið eftirlit með loftrýminu.

18.2.2020 Kl: 09:03

Í ár verða ratsjáreftirlitskerfin hér á landi uppfærð og er
verkefnið að mestu fjármagnað af Mannvirkjasjóði Atlantshafsbandalagsins. Til
að tryggja að eftirlit með loftrýminu sé órofið flutti kanadíski flugherinn
færanlegan ratsjárbúnað hingað til lands. Starfsmenn Landhelgisgæslunnar á
öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og 30 liðsmenn kanadísku sveitarinnar hafa
undanfarnar vikur unnið að uppsetningu búnaðarins sem staðsettur er á
Miðnesheiði.

Framlag Kanada er þýðingarmikið og endurspeglar mikilvægt
samstarf þjóðanna, samstöðu aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins og mikilvægi
þess fyrir bandalagið. Afar brýnt er að á Íslandi sé virkt
loftrýmiseftirlit alla daga ársins. Ratsjárstöð kanadíska flughersins tryggir að svo verði áfram
meðan unnið er að uppfærslunni. Landhelgisgæslan er þakklát kanadísku
flugsveitinni og framlagi hennar til verkefnisins. 

Ljósmyndari kanadíska flughersins tók meðfylgjandi myndir:

Georg-Larusson-Jon-B.-Gudnason-og-lidsmenn-kanadiska-flughersinsGeorg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, og Jón B. Guðnason, framkvæmdastjóri varnarmálasviðs Landhelgisgæslunnar, kynntu sér ratsjárstöðina á dögunum.Unnid-ad-uppsetninguUnnið að uppsetningu.20200211ISD0001D008Ratsjárstöð kanadíska flughersins tryggir að svo verði áfram meðan unnið er að uppfærslunni. 20200206ISD0001D003Starfsmenn Landhelgisgæslunnar og 30 liðsmenn kanadísku sveitarinnar unnu að uppsetningunni.20200208ISD0001D010Færanlega ratsjárstöðin. Myndir: CAF