Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, og Ásgrímur L. Ásgrímsson, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs, fóru með áhöfninni á TF-EIR sem var á æfingu fyrr í vikunni og litu við á Dalvík
20.12.2019 Kl: 15:47
Varðskipið Þór kom til Reykjavíkur í morgun eftir annasama daga á Norðurlandi. Áhöfnin hefur staðið í ströngu að undanförnu og úthald varðskipsins var nokkuð lengra en upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir. Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, og Ásgrímur L. Ásgrímsson, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs, fóru með áhöfninni á TF-EIR sem var á æfingu fyrr í vikunni og litu við á Dalvík þar sem heilsað var upp á áhöfnina á Þór.
Þorgeir Baldursson, ljósmyndari Morgunblaðsins, tók þessar skemmtilegu myndir af hópnum fyrir norðan fyrr í vikunni.
Ásgrímur L. Ásgrímsson, Georg Kr. Lárusson og Halldór Benóný Nellett.
TF-EIR lendir á Dalvík.
Áhöfnin á Þór ásamt áhöfninni á TF-EIR
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar.
TF-EIR á bryggjunni á Dalvík.
Varðskipið Þór.