Landhelgisgæslan hvetur eigendur skipa og báta að huga að þeim vegna veðurútlits

9. desember, 2019

Landhelgisgæslan bendir á að öldu- og vindáhlaðandi, samfara þeim lága loftþrýstingi sem spáð er, geti bætt talsvert við sjávarhæð í höfnum umfram það sem útreiknaðar sjávarfallatöflur gefa til kynna

9.12.2019 Kl: 14:55

Landhelgisgæsla Íslands vekur athygli á afar slæmri veðurspá
næstu daga samhliða stækkandi straumi, en stórstreymt verður á föstudaginn.
Stormviðvörun er í gildi fyrir öll spásvæði á miðum og djúpum umhverfis landið.
Á morgun og á miðvikudag er gert ráð fyrir norðan roki og sums staðar
ofsaveðri. Þá gera útreikningar öldulíkana ráð fyrir mikilli ölduhæð norðan við
landið.

Landhelgisgæslan bendir á að öldu- og vindáhlaðandi, samfara
þeim lága loftþrýstingi sem spáð er, geti bætt talsvert við sjávarhæð í höfnum
umfram það sem útreiknaðar sjávarfallatöflur gefa til kynna, sérstaklega þar
sem vindur stendur á land. Landhelgisgæslan hvetur því eigendur og umsjónarmenn
skipa og báta í höfnum til að huga að þeim við þessar aðstæður.

Hér má finna veðurspákort af gagnasíðu
Veðurstofunnar http://brunnur.vedur.is og
gildir það kl 0600 á miðvikudagsmorgun.