Þyrlan lenti á Höfn og tók eldsneyti áður en hún sótti skipverjann.
6.12.2019 Kl: 13:41
Áhöfnin á TF-LIF, þyrlu Landhelgisgæslunnar, sótti síðdegis
í gær veikan skipverja sem staddur var á fiskiskipi um 70 sjómílur austur af
Djúpavogi. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst hjálparbeiðni frá skipstjóra
fiskiskipsins á þriðja tímanum í gær en þá var TF-LIF á flugi áleiðis til
Hafnar í Hornafirði. Þyrlan lenti á Höfn og tók eldsneyti áður en hún sótti
skipverjann. Hífingar gengu vel, sérstaklega miðað við aðstæður. Kolniðamyrkur
var þegar þyrlan kom að skipinu og fór skutur þess allt að átta metra upp og
niður þegar sigmaður Landhelgisgæslunnar fór um borð. Þyrlan Eir var sömuleiðis
kölluð út en hún var til taks á Höfn í Hornafirði á meðan áhöfnin á TF-LIF
sótti skipverjann. Hann var svo fluttur á Höfn en þar beið sjúkraflugvél
Mýflugs sem flaug með manninn til Reykjavíkur.