Breiðafjörður kortlagður

11. október, 2019

Mælingaúthaldi Baldurs lauk fyrir skemmstu

11.10.2019 Kl: 11:24

Fyrr á þessu ári var fjölgeislamælir eftirlits- og
sjómælingaskipsins Baldurs endurnýjaður. Nýr mælir er af gerðinni Teledyne
RESON SEABAT T50-ER og er hann mikil bylting frá eldri mæli. Munar þar helst um
mun meiri nákvæmni og upplausn auk þess sem hann getur mælt á talsvert meira
dýpi. Þá var einnig bætt við nýjum mæli, svokölluðum jarðlagamæli, sem notaður
er til að mæla þykkt setlaga á hafsbotni. Slíkar mælingar eru í þágu
vísindasamfélagsins, en sem kunnugt er tekur Landhelgisgæslan þátt í verkefni með
Hafrannsóknastofnun og fleiri vísinda- og rannsóknarstofnunum um kortlagningu
hafsbotnsins.

Baldur hefur svo frá því í vor verið við sjómælingar á
Breiðafirði en mælingaúthaldinu lauk fyrir skemmstu. Frá árinu 2017 hefur verið
unnið að dýptarmælingum vegna fyrirhugaðrar útgáfu á nýju sjókorti í
Breiðafirði sem mun ná frá Brjánslæk að Elliðaey við Stykkishólm og nær það því
meðal annars yfir stærstan hluta af siglingaleið Breiðafjarðarferjunnar. Líkt
og vænta mátti hafa mælingar á þessu svæði erfiðar og mjög seinlegar vegna
aragrúa af eyjum, skerjum og boðum auk þungra sjávarfallastrauma og mikils
munar flóðs og fjöru. Þá var stór hluti af svæðinu algerlega ómældur og engin
almenn þekking til um botnlag og dýpi á þeim svæðum. Hefur því verið um afar
vandasamt verk að ræða fyrir sjómælingamenn Landhelgisgæslunnar. Baldur hentar
þó afar vel til dýptarmælinga í Breiðafirðinum þar sem hann er grunnristur og
lipur. Um borð í Baldri er einnig léttbátur sem er sérútbúinn til dýptarmælinga
og hefur hann talsvert verið notaður til mælinga á svæðum sem erfitt hefur
verið að koma Baldri að.

Samhliða dýptarmælingum hafa sjómælingamenn sinnt
sjávarfallamælingum með sérstökum flóðmælum sem settir voru upp á Brjánslæk,
Reykhólum og í Stykkishólmi og verða gögnin úr þeim notuð til leiðréttinga á
mældu dýpi miðað við sjávarstöðu hverju sinni, en dýpistölur í íslenskum
sjókortum miðast við sjávarstöðu á meðalstórstraumsfjöru.

Mælingum í þetta nýja sjókort lauk nú í september og liggur
nú fyrir úrvinnsla mælingagagna og svo kortagerðin sjálf og má reikna með að
kortið verði gefið út innan fárra ára.

Auk mælinga í þetta nýja sjókort hafa á þessum þremur sumrum
einnig verið gerðar dýptarmælingar vegna útgáfu nýrra hafnarkorta fyrir
Brjánslæk og Reykhóla auk endurmælinga á dýpi fyrir núverandi hafnarkort
Flateyjar og Stykkishólms.

Auk mælinga í Breiðafirði hefur Baldur einnig unnið að
dýptarmælingum í hafnarkort Reykjavíkur ásamt því að sinna hinum ýmsu
tilfallandi verkefnum líkt og löggæslu, leit og björgun og æfingum, en úthaldið
endaði á þátttöku Baldurs í sprengjueyðingaræfingunni Northern Challenge.

Vid-strand-Blidu-SH-var-vettvangsstjorn-um-bord-i-BaldriVið strand Blíðu í júní árið 2019.Vid-maelingarVið mælingarLettbatur-Baldurs-vid-dyptarmaelingar-i-BreidafirdiLéttbátur Baldurs við dýptarmælingar.Flodmaelir-undirbuinnFlóðmælir undirbúinn. Maelingar-og-maeta-ThorBaldur við mælingar og Þór í grenndinni.Lettbatur-sjosetturLéttbátur sjósettur.Ahofn-Baldurs-2019-mynd-JPAÁslaug Ellen G. Yngvadóttir, Ágúst Ómar Valtýsson, Guðmundur Birkir Agnarsson, Andri Leifsson. Áhöfn Baldurs árið 2019.Breidafjordur-maelingar-2017-2019Breiðafjörður – mælingar 2019.Baldur-vid-maelingar-i-BreidafirdiBaldur við mælingar í Breiðafirði.Blida-SH-a-strandstadBlíða á strandstað.Baldur-vid-maelingar-vid-Hergilsey-i-BreidafirdiBaldur við mælingar. Ahofn-Baldurs-a-skipid-yfirgefid-aefinguÁhöfn Baldurs æfir að yfirgefa skipið.Baldur-vid-bryggju-i-FlateyBaldur við bryggju í Flatey.