Séraðgerða- og sprengjueyðingarsveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út á sunnudag.
1.10.2019 Kl: 12:24
Séraðgerða- og sprengjueyðingarsveit Landhelgisgæslunnar var
kölluð út síðdegis á sunnudag, að beiðni lögreglunnar á Suðurnesjum, vegna handsprengju
sem fannst á svokölluðu Patterson svæði nálægt Ásbrú.
Tveir liðsmenn sprengjueyðingarsveitarinnar fóru á staðinn
og í ljós kom að um var að ræða virka handsprengju á þekktu sprengjuæfingasvæði
gamla varnarliðsins. Talið er að handsprengjan hafi verið í jörðu og komið upp
á yfirborðið í jarðvegslyftingum. Vel gekk að eyða sprengjunni.
Umrætt svæði hefur margoft verið leitað og hreinsað en endrum og sinnum finnast þar
sprengjur á borð við þessa sem koma upp á yfirborðið.
Landhelgisgæslan leggur því áherslu á að fólk gæti varúðar á
svæðinu. Leiki grunur á að um sprengju sé að ræða er mikilvægt að láta lögreglu
vita.
Handsprengjan sem fannst var virk.
Gígurinn sem myndaðist að sprengingu lokinni.