Konurnar hjá Landhelgisgæslunni slógu í gegn.
25.1.2019 Kl: 14:20
Konurnar hjá Landhelgisgæslunni tóku höndum saman í morgun og gerðu afar vel við karlkyns vinnufélaga sína í tilefni bóndadagsins og buðu til veglegar kökuveislu. Þetta mæltist mjög vel fyrir og sló svo sannarlega í gegn. Um samstilltar aðgerðir var að ræða sem fóru fram samtímis í Keflavík, Skógarhlíð og Reykjavíkurflugvelli. Sömuleiðis var boðið til kökuveislu í varðskipinu Tý. Einnig var búið að setja miða með ljóðum í skál og áttu allir að draga úr skálinni. Karlarnir voru þakklátir fyrir þessar glæsilegu kræsingarnar en þurfa svo að sýna hvað í þeim býr á konudaginn, þann 24. febrúar.
Kökurnar voru afar veglegar og hittu í mark.
Sigríður Guðbjörnsdóttir, Linda María Runólfsdóttir og Margrét Óskarsdóttir stóðu í ströngu.
Jón Árni Árnason, Emil Sigurðsson og Stefán Einarsson, varðstjórarnir í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar, brostu hringinn þegar komið var með kræsingarnar í morgun.
Þórarinn Ingi Ingason, flugstjóri, Helgi Rafnsson, flugvirki og Kristján Björn Arnar, flugvirki, ræða saman.
Rannveig, Tinna og Sólveig sáu um veisluborðið í varðskipinu Tý.
Texti Bubba Morthens átti vel við í dag.
Starfsmenn Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli.
Þar sem hjartað slær, skilaboðin til starfsmanna stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar voru viðeigandi.
Páll Geirdal, Níels Bjarki Finnsen, Georg Kr. Lárusson og Ásgrímur L. Ásgrímsson gæða sér á veitingunum.
Fjölmennt var á skrifstofu Landhelgisgæslunnar í Skógarhlíð.
Á Keflavíkurflugvelli sló uppátækið í gegn.
Sigríður, Margrét og Linda voru þjóðlegar í tilefni dagsins.
Allir drógu eitt ljóð úr skál.
Ljóðin um borð í Tý.
Veisluborðið var glæsilegt um borð í varðskipinu Tý.