Reykköfun á Ísafirði

6. desember, 2018

Varðskipið Þór var á Ísafirði í vikunni og við það tilefni var ákveðið að halda reykköfunaræfingu um borð í rækjutogaranum Ísborgu II sem lá við bryggju í bænum

6.12.2018 Kl: 15:18

Varðskipið Þór var á Ísafirði í vikunni og við það tilefni
var ákveðið að halda reykköfunaræfingu um borð í rækjutogaranum Ísborgu II sem
lá við bryggju í bænum. Reykvél var komið fyrir á millidekki togarans og
þeir sem tóku þátt í æfingunni fengu upplýsingar um að skipið væri vélarvana
og eins væri saknað. Áhöfn varðskipsins fór sjóleiðina að togaranum í
léttbát og var allur búnaður tekinn um borð með handafli. Þar að auki voru
dælur keyrðar og þrjú teymi reykkafara send til leitar um borð í skipinu.
Æfingin gekk afar vel og fannst „maðurinn“ fljótlega á millidekki togarans.  Landhelgisgæslan þakkar eiganda útgerðarinnar
innilega fyrir samstarfið enda mikilvægt fyrir áhafnir varðskipanna að fá
tækifæri til æfinga um borð í hinum ýmsu fiskiskipum til að vera eins vel
undirbúnar og kostur er þegar mest á reynir.

IMG_1532Áhöfnin á Þór að störfum.

IMG_1524Léttbáturinn kemur að togaranum.

IMG_1534Æfingin gekk afar vel.