Landhelgisgæslan vill brýna fyrir skipstjórum að kynna sér vel skyndilokanir og önnur lokuð svæði áður en haldið er til veiða.
21.8.2018
Nokkur fjöldi skipa og báta voru á sjó í gær. Þegar mest var
höfðu varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar eftirlit með 655 skipum og
bátum á miðunum í kringum landið. TF-SYN, þyrla landhelgisgæslunnar, fór í
gæsluflug um Norðurland og Vestfirði laust
eftir hádegi í gær. Þegar þyrlan flaug yfir Húnaflóa var bátur staðinn að
ólöglegum handfæraveiðum í skyndilokunarsvæði í flóanum. Áhöfn þyrlunnar vísaði bátnum til
hafnar þar sem lögreglan tók við rannsókn málsins. Skipstjórans
bíður kæra. Landhelgisgæslan vill brýna fyrir skipstjórum að
kynna sér vel skyndilokanir og önnur lokuð svæði áður en haldið er til veiða. Á
vef Fiskistofu má finna allar upplýsingar um slík svæði.