Skipverjar á Tý fóru með nýjan rafgeymi í bátinn
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst á níunda tímanum í morgun tilkynning um að bátur væri vélarvana norður af Hornvík. Strandveiðibátur í grenndinni tók hann í tog og hélt með hann fyrir Kögur. Varðskipið Týr var á nálægum slóðum og var óskað eftir því að það kæmi til móts við bátana og tæki við drættinum. Rúmum tveimur tímum síðar var Týr kominn í Fljótavík.
Samkvæmt upplýsingum frá skipstjóra reyndist báturinn vera rafmagnslaus og því var ákveðið að skipverjar á Tý færu með rafgeymi frá varðskipinu yfir í hinn vélarvana bát. Allt gekk að óskum og eftir að búið var að setja nýjan rafgeymi í bátinn sigldi hann fyrir eigin vélarafli til Bolungarvíkur.
Skipverjar á varðskipinu fóru með rafgeymi í bátinn.
Strandveiðibátur í grenndinni tók bátinn í tog og hélt með hann fyrir Kögur.
Ljósmyndirnar tók Guðmundur St. Valdimarsson,bátsmaður, þegar varðskipið aðstoðaði strandveiðibátinn.