Varðskip
Júlí - Fréttir af smíði Þórs í Chile
8. júlí 2009
Smíði varðskipsins Þórs í Chile gengur ágætlega en þrátt fyrir að skipið líti út fyrir að vera nánast tilbúið eru um níu mánuðir þar til hægt verður að sigla skipinu til Íslands.
Á hverjum degi er búnaður hýfður um borð og á myndinni má sjá skilvindu á leið niður í vélarrúm. Er hún ein af þremur skilvindum sem eiga að þjónusta skipið, tvær þeirra eru til að hreinsa smurolíu aðalvéla og ein er til að hreinsa eldsneyti. Þegar skilvindan kemur niður byrjar vinna við að festa hana og leggja þau rör, rafmagn og tölvukapla sem tilheyra. Skilvindan er vöktuð af viðvörunarkerfi skipisins. Fara þarf yfir öll kerfi og ganga úr skugga um að allur búnaður um borð virki og vinni eins og til er ætlast.
Reglulega eru skoðanir þar sem farið er yfir teikningar, byggingalýsingu og önnur gögn til að ganga úr skugga um að allt sé til staðar, farið er yfir gæði og komið með athugasemdir ef þörf er á.
frá Unnþóri Torfasyni, vélstjóra LHG


Skilvinda flutt um borð

Kýrauga á A þilfari tekið út.
Þéttleikaprófun, þá er sjó sprautað af miklum
þrýstingi á rúðuna og leitað er eftir leka.

