Varðskip
Verksmiðjuprófun aðalrafmagnstöflu
Mánudagur 17. Nóvember
Nýverið fór fram í Noregi verksmiðjuprófun á aðalrafmagnstöflu nýja varðskipsins. Prófuð var virkni og útleiðsla og var taflan síðan yfirfarin með tilliti til að merkingar væru réttar og allir notendur til staðar. Prófunin gekk mjög vel og engin bilun kom í ljós.
Aðaltafla varðskipsins sér um að flytja rafmagnsframleiðslu frá aðal- og ljósavélum til notanda, þ.e. til skipsins. Taflan veitir möguleika á að skipta notkuninni á milli rafala án truflana til notenda og heldur utan um rafmagnsframleiðslu upp á 5400KW. Til að setja þetta í samhengi þá er Elliðaárvirkjun 3160KW. Aðaltaflan er algjörlega stýrð í gegnum tölvuskjá og er að mestu sjálfvirk, bætir við ljósavélum og tekur út með tilliti til rafmagnsálags, en einnig er fyrir hendi möguleiki á handstýringu.
Myndir tók Unnþór Torfason vélstjóri.
14.11.2008/HBS



