Varðskip
Prófun á Bakborðsskrúfu nýja skipsins
12. september 2009
Meðfylgjandi eru myndir af prófun á bakborðsskrúfu nýja skipsins sem fram fór hjá RRM í Kristinehamn í Svíþjóð 9. september sl.
Mynd 2 sýnir skrúfuna í fjöðrun, það er þegar hún er ekki í notkun. Þá liggja blöðin lárétt í sjónum. Mynd 1 sýnir skrúfuna í 0 stöðu, það er enginn skurður á blöðunum.
Á skipinu eru tvær framdrifsskrúfur af þessari gerð , skrúfurnar eru 3600 mm í þvermál ( 3,6 metrar) og snúast 178 sn/ mín.
Myndirnar tók Ingvar Valdimarsson.
12.09.2008/HBS

Mynd 1

Mynd 2

