Aðgerðasvið
Aðgerðasvið
Segja má að allar einingar LHG taki þátt í verkefnum sem lúta að öryggis og löggæslu, sem og eftirliti á hafinum, með einum eða öðrum hætti.
Aðgerðasvið hefur það hlutverk að skipuleggja og framkvæma löggæslu og eftirlit með landhelgi Íslands, efnahags- og fiskveiðilögsögu Íslands, mengunarvörnum og siglinum á íslensku hafsvæði í samræmi við lög um Landhelgisgæslu Íslands. Einnig að sinna leit og björgun á hafinu umhverfis Ísland og á landi þegar þörf er á.
Aðgerðasvið hefur það hlutverk með höndum að taka ákvörðun um hvert beina skuli einingum stofnunarinnar hverju sinni til eftirlits, öryggis- og löggæslu.
Meginmarkmið sviðsins eru:
- Að vera viðbúnir hvenær sem er.
- Að halda uppi virkri löggæslu og eftirliti með landhelginni.
- Að viðhalda virkri vöktun með siglingum
- Að viðhafa skilvirka aðgerðastjórn.
- Að sinna sérhæfðri þjónustu svo sem sprengjueyðingu og köfun.
Aðgerðasviði er stjórnað af framkvæmdastjóra aðgerðasviðs sem heyrir beint undir forstjóra. Meðal helstu verkefna eru löggæsla í landhelgi Íslands, leit og björgun, sprengjueyðing, köfunarþjónusta og ýmis tilfallandi þjónusta við land og lýð.


