Liðsmenn ítalska flughersins fara í 14 daga sóttkví fyrir komuna til landsins og aftur á Íslandi.
Loftrýmisgæsla ítalska flughersins hefst hér á landi um
miðjan júní. Liðsmenn flughersins fara í 14 daga sóttkví, læknisskoðun og
skimun á herstöð áður en hingað er komið. Þá fara þeir aftur í 14 daga sóttkví
á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli eftir komuna til landsins.
Síðustu loftrýmisgæslu á vegum Atlantshafsbandalagsins lauk
hér á landi í byrjun apríl með brottför norska flughersins. Gert var ráð fyrir
að ítalski flugherinn kæmi í kjölfarið en vegna aðstæðna var komu Ítala
seinkað.
Nú er verkefnið aftur komið á dagskrá og er ráðgert að
loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefjist að nýju um miðjan
júní með komu flugsveitar ítalska flughersins. Áætlað er að 135 liðsmenn
flughersins taki þátt í verkefninu auk starfsmanna frá stjórnstöð NATO í Uedem,
Þýskalandi (Combined Air Operations Center). Flugsveitin kemur til landsins með
sex F-35 orrustuþotur og eru þoturnar væntanlegar í annarri viku júnímánaðar.
Undirbúningshópur ítölsku flugsveitarinnar er kominn til
landsins. Ítölsk yfirvöld gefa út vottorð fyrir alla liðsmenn áður en þeim er
heimilt að fara með herflugi til Íslands. Við komuna til Íslands fara þeir
aftur í 14 daga sóttkví innan öryggissvæðisins á Keflavíkurflugvelli. Framkvæmd
sóttvarnaráðstafana er unnin í samráði við Embætti landlæknis.
Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á
Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 10. til 19. júní.
Framkvæmd verkefnisins verður með sama hætti og fyrri ár og
í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland. Flugsveitin verður
staðsett á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Gert er ráð fyrir að
verkefninu ljúki eftir miðjan júlí. Landhelgisgæsla Íslands annast framkvæmdina
í samvinnu við Isavia.